Finnur Bjarki, Þorbjörg Tryggva, Hilmar Tryggvi

Porterhouse!

Af hverju ekki?

Porterhouse er frá upphafi dulnefni/alias fyrir Tónlistarverkefni sem flest hafa fengið að liggja í skúffunni óáreytt of lengi. Enda hefur tónlistarsköpunin verið fyrst og fremst okkur til gamans, svona eins og sumir stunda golf eða bóna bílinn sinn.

Hinsvegar vorið 2006 var ákveðið að taka þetta fastari tökum og koma þessum lagasmíðum á framfæri og hófst undirbúningur þá og og 3. júli 2010 kom út er fyrsta breiðskífa Porterhouse - Spinal Chords.




Porterhouse eru Finnur Bjarki, Þorbjörg Tryggva og nú hefur
Hilmar Tryggvi komið inn með nokkur góð lög í safnið hjá Porterhouse. Svo þetta stefnir í fjölskylduævintýri.

Við eigum í góðu samstarfi við textahöfunda þá ber helst að nefna Friðmey Sveinsdóttur, Vidar Borstad og svo eru til textar eftir Friðrik Sturluson og Andreu Gylfadóttur

Við höfum fengið til liðs við okkur ýmsa gesti undanfarina ár eins og Helga Val (Trúbador), Sjöfn Dagmar Guðjónsdóttir unga og stórefnilega söngkonu, Rúnar Örn Friðriksson úr Sixties sem söng upprunalegu útgáfuna af Desperate Man og Bryndís Ásmundsdóttir leik og söngkonu. Bryndís söng Eternally Yours árið 1994. En sjálfur Bono Íslands Jóhannes Eiðsson bakraddaði hana upp í því lagi. Bæði þessi lög komu út á safnplötunni Sándkurl.

Við lagið Eternally Yours gerði Jón Gústafsson myndband sem okkur þótti æðisleg á sínum tíma og verður einhverjum skemmtilegt til upprifjunar.

En þess má geta að Jón Gústafsson hefur raðað inn verðlaunum fyrir heimildarmynd sína Wrath of Gods sem hann kvikmyndaði og framleiddi ásamt Gerrard Butler leikara.

Jón Gústafsson er frábær fagmaður, eins og nafni hans sem við höfum unnið mikið með og stutt við bakið á okkur með útsetningum og upptökum en hann heitir Jón Elvar Hafsteinsson (Jónsi) gítarleikari og upptökustjóri í Studíógatinu.

Í gegnum Jónsa hafa menn eins og Karl O Olgeirsson og Jóhann Hjörleifsson komið að málum með góðum hætti.

Ekki má gleyma samstarfi með þeim félögum úr Dikta. Skúla og Nonna sem eru eðalpiltar og frábærir tónlistamenn og Árna Óla Bassafanti frá Selfossi.

þá höfum við starfað með Elad Fish, Asaf Rodeh og félögum hjá StudioPros.com sem var afar lærdómsríkt ferli.

2008 gerðu fyrsta árs nemendur Kvikmyndaskóla Íslands þrjú myndbönd við lög Porterhouse undir leiðsögn Maríönnu Friðjónsdóttur

2009 byrjuðum við að vinna með Örlygi Smára sem hefur stýrt upptökum á einu lagi og endurhljóðblandað annað bæði fyrir safnplötur, svo fínt gekk það samstarf að Örlygur Smári kláraði upptökur með okkur og mixaði plötuna okkar Spinal Chords.

Eyþór Ingi Gunnlaugsson frábær rokksöngvari syngur lagið Wake up now og Bergþór Smári spilar slide Gítar í sama lagi sem kom út á Sumar-safnplötunni Sumarstjörnur 2009 og svo re-masterað á Spinal Chords 2010.

Shay Dillon flutti Their Bottom Line sem kom út á Rock 4 Life safnplötu hjá Quickstar Productions lítilli (Indie) útgáfu í Bandaríkjunum.

Á Spinal Chords koma við sögu fleiri hljóðfæraleikarar og söngvarar.

Óskar Þormarson trommari úr Veðurguðunum og Fjallabræðrum, Kristinn Sturluson Íslenska Sveitin og Kung Fú. Pétur Örn Guðmundsson sem syngur fjögur lög & Stefán Örn Gunnlaugsson úr hljómsveitinni Buff. Og Einar Ágúst Skítamórall og Eurovision stjarna 

Ekki má gleyma heimsókn Heru Bjarkar í Studíóið til okkar í raddþjálfun og leiðbeiningar við söngupptökur.


Ný tónlist frá Porterhouse er fáanleg á Gogogyoko.com/porterhouse

og eldri lög á Amie Street.com/porterhouse

Einnig er Þér velkomið að hafa samband.

 

Með kveðju og þakklæti Finnur Bjarki