 Laugardaginn 3. júlí kl. 16:00 verður opnuð málverkasýning og um leið fagnað útgáfu geisladisksins Spinal Chords með Porterhouse í Gallerí Ormi, Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Á sýningunni sameinast tónlist og myndlist í verkum Porterhouse og Sigrúnar Jónsdóttur listmálara frá Ásvelli í Fljótshlíð.
Porterhouse er í dag tónlistarverkefni Finns Bjarka, Þorbjargar Tryggva og Hilmars Tryggva Finnssonar frá Hvolsvelli. Sigrún Jónsdóttir hefur myndskreytt 10 tónverk úr smiðju Porterhouse. Hún túlkaði hvert þeirra á sinn hátt í málverki eftir innihaldi og áferð lagsins. Tónlistin mun hljóma undir sýningunni.
- Útgáfa geisladisksins Spinal Chords með Porterhouse er til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands.
Sýningin stendur frá 3. júlí til 11. ágúst og er opin alla daga frá 9:00 – 18:00.
Sýningin er styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Spinal Chords diskurinn verður til sölu í Sögusetrinu á Hvolsvelli á 3000.-kr
Einnig verður hægt að kaupa hann í síma 908-7070 sem gjaldfærir sjálfkrafa 3000 kr af símreikningi, þú þarft að gefa upp nafn og heimilisfang í talhólfið!
Styrktarlína í boði Vodafone 908-7070 fyrir Mænuskaðastofnun Íslands. Og þegar þú hringir heyrir þú:
Takk fyrir að styrkja Mænuskaðastofnun Íslands. Með þessu símtali samþykkur þú að 3.000 kr verða dregin af þínum næsta símreikningi. Vinsamlega lestu inn nafn og heimilisfang eftir hljóðmerkið og við sendum þér geisladiskinn Spinal Chords með Porterhouse. |